Drangi lögmenn
Drangi er sérhæfð lögmannsstofa sem sinnir málflutningi og verkefnum á réttarsviðum tengdum viðskiptalífinu.
Starfsmenn Dranga hafa fjölbreytta reynslu og sérþekkingu sem gerir okkur kleift að sinna umfangsmiklum og flóknum verkefnum.
Starfssvið
Réttarsvið tengd viðskiptalífinu
Kjarni starfseminnar
Málarekstur og málflutningur
Lögmenn Dranga sinna málarekstri og málflutningi á stjórnsýslustigi, fyrir öllum almennum dómstólum landsins og gerðardómum.
Starfsmenn
Lögmaður stofunnar
Guðjón Rúnarsson
Lögmaður
Guðjón er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Guðjón hefur lengst af á sínum starfsferli starfað við hagsmunagæslu fyrir íslenskt atvinnulíf, fyrst hjá Viðskiptaráði og síðar Samtökum fjármálafyrirtækja. Guðjón þekkir því vel regluverk og starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja, ekki síst á fjármálamarkaði. Þá hefur Guðjón verið skipaður í opinberar nefndir í tengslum við regluverk og stefnumótun á fjármálamarkaði.



