Guðjón Rúnarsson
Lögmaður
Guðjón er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Guðjón hefur lengst af á sínum starfsferli starfað við hagsmunagæslu fyrir íslenskt atvinnulíf, fyrst hjá Viðskiptaráði og síðar Samtökum fjármálafyrirtækja. Guðjón þekkir því vel regluverk og starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja, ekki síst á fjármálamarkaði. Þá hefur Guðjón verið skipaður í opinberar nefndir í tengslum við regluverk og stefnumótun á fjármálamarkaði.
Starfsferill
- Drangi lögmenn frá 2018
- Atlantik lögfræðiþjónusta 2017–2018
- Framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og forvera þeirra 2000–2016
- Aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs 1998–2000
- Alþingi 1993–1997
Menntun og réttindi
- Löggiltur verðbréfamiðlari 2001
- European University Institute, LL.M í evrópskum félaga- og samkeppnisrétti 1998
- Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 1996
- Háskóli Íslands, cand. jur. 1993



